Terms of service
moondust ehf (kt: 710323-0970) er rekstraraðili moondust.is
vsk númer: 151475
+354 858-5556
moondust@moondust.is
----------------
Moondust ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending pantana:
Allar pantanir eru afgreiddar 1-2 dögum eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða endurgreiða kaupin. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. moondust ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá moondust ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Verð á vöru og sendingakostnaður:
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Póstinum. Villur í verði geta orðið til fyrir slysni og eru ekki bindandi fyrir moondust.is og er okkur heimilt að breyta því án frekari útskýringa.
Verðhækkanir sem og verðlækkanir er eiga sér stað eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega. Öll verð eru gefin upp í Íslenskum krónum.
Að skipta og skila vöru:
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Fyrir nánari upplýsingar skal hafa samband í tölvupóst á moondust@moondust.is
Ósóttar pantanir:
Hafi vara ekki verið sótt innan við 6 mánuði eftir að hún er tilbúin til afhendingar fer hún aftur í sölu.
Gölluð vara:
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Trúnaður (Öryggisskilmálar):
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing:
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Persónuvernd:
moondust.is notar vafrakökur í því skyni að bæta vefsíðuna og upplifun viðskiptavina okkar. Vafrakökur gera vefsíðunni kleift að fá nafnlausar upplýsingar um hvernig notendur nota vefinn og auðvelda aðgengi notenda að upplýsingum. Þær geyma engar persónuupplýsingar og engum upplýsingum er deilt með þriðja aðila.
Moondust.is notar einnig Google Analytics og Facebook Pixel til að meðal annars greina hvaðan umferð inn á vefinn er að koma og mæla virkni auglýsinga. Þessar þriðju aðila þjónustur nota sínar eigin vafrakökur til að fylgjast með samskiptum gesta við vefsvæði. Hægt er að breyta stillingum í vafranum sem notaður er svo upplýsingar séu ekki vistaðar án þess að beðið sé um leyfi fyrst.
moondust.is fer með persónuupplýsingar í samræmi við nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Persónuupplýsingar eru geymdar í gagnagrunni moondust.is og hefur enginn nema eigendur vefsins og umsjónarmenn hans aðgang að þeim. Í engum tilvikum eru persónuupplýsingar afhendar þriðja aðila.
Við kaup á vöru eða þjónustu veitir viðskiptavinur moondust.is samþykki sitt fyrir að fyrirtækið safni og vinni úr persónuupplýsingum úr gagnagrunni fyrirtækisins. moondust.is mun ekki undir neinum kringumstæðum geyma neinar kreditkorta upplýsingar kaupanda, þar sem kaupandi fer sjálfkrafa inná örugga greiðslusíðu Teya eða Aur og gengur frá greiðslu fyrir kaupum þar.
Samþykki fyrir móttöku SMS skilaboða
Með því að skrá þig á SMS listann okkar samþykkir þú að fá skilaboð í markaðslegum tilgangi. Textaskilaboðin frá okkur innihalda aðallega sértilboð og afslætti, en geta einnig innihaldið tilkynningar.
Þú getur afskráð þig af SMS listanum hvenær sem er með því að fylgja leiðbeiningum sem þú fékkst með skilaboðunum þegar þú skráðir þig fyrst. Ef þú lendir í erfiðleikum, ekki hika við að hafa samband við okkur og við aðstoðum þig við afskráninguna.
Við tryggjum að persónuupplýsingar þínar séu unnar í samræmi við gildandi persónuverndarlög, þar á meðal almennu persónuverndarreglugerðina (GDPR). Skráning á SMS listann felur í sér samþykki fyrir að unnið sé með símanúmer þitt í þeim tilgangi að senda þér skilaboð.
Ef þú hefur spurningar varðandi vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við SMS þjónustuna, vinsamlegast hafðu samband við okkur.
Aðgangur þinn og notkun á moondust.is er háð skilmálum og skilyrðum sem koma fram í þessari tikynningu um lagaleg atriði. Ef þú samþykkir ekki þessa skilmála, skaltu ekki nota þessa síðu. Þessir skilmálar geta breyst frá einum tíma til annars án fyrirvara.
