- Heim
- 20% AFSLÁTTUR
- Marc Inbane Perle de Soleil Ampúlur 10x1 ml
Marc Inbane Perle de Soleil Ampúlur 10x1 ml
Fá stykki eftir
- Frí afhending með dropp á pöntunum yfir 15.000kr
- Veittur er 14 daga skilafrestur til endurgreiðslu.
- Hægt að dreifa greiðslu með Netgíro/Pei.
Perle de Soleil Ampúlurnar innihalda sívinsælu Perle de Soleil brúnkudropana frá MARC INBANE. Droparnir eru fullkomnir til að ná fram fallegum og heilbrigðum ljóma og náttúrulegri brúnku sem er sérsniðin að óskum hvers og eins.
Í einum kassa eru 10 ampúlu glös en hver ampúla inniheldur ca. 15 dropa sem hægt er að blanda við andlits- eða líkamskrem eða sólarvörn fyrir létt glow eða hið fullkomna sumartan.
MARC INBANE er hágæða hollenskt snyrtivörumerki sem framleiðir lúxus húðvörur og sérhæfir sig í brúnkuvörum og tengdum vörum og eru þau frumkvöðlar á sínu sviði.
Hrein innihaldsefni, faglegt handverk, fáguð útlitshönnun og fagmennska í öllu framleiðsluferlinu setur MARC INBANE í leiðandi stöðu í framleiðslu á hágæða snyrtivörum.
Allar vörur frá MARC INBANE eru án parabena.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR:
Brúnkudroparnir eru mjög auðveldir í notkun - þú einfaldlega blandar þeim saman við þitt eftirlætis rakakrem/líkamskrem eða í sólarvörnina þína og nærð þannig fram náttúrulegri brúnku.
Til að ná sem bestum árangri gott að nota svarta skrúbbinn frá MARC INBANE að minnsta kosti einu sinni í viku. Skrúbburinn, sem er sótthreinsandi, fjarlægir óhreinindi, dauðar húðfrumur sem og þurrkubletti. Skrúbburinn eykur líka blóðflæði og örvar endurnýjun húðarinnar. Þar sem yfirborð húðarinnar verður jafnara og sléttara við notkun á skrúbbnum þá verður liturinn líka jafnari og helst mun lengur.
Brúnkudropana skal aðeins nota með nærandi kremi og mikilvægt er að fylgja notkunarleiðbeiningum. Brúnkudroparnir innihalda ekki SPF og veita því ekki vörn gegn skaðlegum geislum sólar. Mikilvægt er að þvo hendur eftir notkun. Aðeins ætlað til útvortis notkunar. Geymið þar sem börn ná ekki til.
INNIHALDSEFNI:
Aqua, Dihydroxyacetone, Alcohol Denat., Erythrulose, Dimethyl Isosorbide, Vitex Agnus Castus Extract, Caramel, Glycerin, Parfum, Acetyl Tyrosine, PEG-40 Hydrogenated Castor Oil, Benzoic Acid, CI 16035, Trideceth-9, Propylene Glycol, Xanthan Gum, Alpha-Isomethyl Ionone, Dehydroacetic Acid, Citronellol, Coumarin, Geraniol, Linalool, Phenoxyethanol.
Hægt að sækja vöru til okkar í veslun (Faxatorg, Faxafeni 10, 2.hæð)
Einnig er hægt að fá hana senda í næsta póstbox eða fá hana senda heim að dyrum, hægt að velja um Dropp eða Íslands póst.
FRÍ SENDING MEÐ DROPP Í NÆSTA PÓSTBOX EF VERSLAÐ ER FYRIR 15,000 KR EÐA MEIRA.
KILIG COSMETICS
CASTOR OIL
Castor olía getur haft jákvæð áhrif á hárið því olían örvar blóðrásina sem eykur vöxt þess, einnig læsir hún raka í hárinu með rakaeiginleikum sínum.
Sveppaeyðandi eiginleikar castor olíunnar hjálpar til við sýkingar í hársverði með því að eyða bakteríum og örverum sem geta valdið hárlosi, flösu og sýkingu.
MARC INBANE
-
FRÍ SENDING MEÐ DROPP Í NÆSTA PÓSTBOX EF VERSLAÐ ER FYRIR 15,000 KR EÐA MEIRA.
-
HÆGT AÐ SÆKJA PÖNTUN EÐA FÁ HANA SENDA Í NÆSTA PÓSTBOX EÐA SENDA HEIM AÐ DYRUM. (1-2 VIRKIR DAGAR)
-
YFIR 2.000 ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR.
-
ÖRUGGAR GREIÐSLUR Í GEGNUM GREIÐSLUGÁTT TEYA, NETGÍRO, PEI EÐA AUR.
Gorgeous, viltu fá 10% afslátt af fyrstu pöntun?
Gorgeous, viltu fá 10% afslátt af fyrstu pöntun?
Skráðu þig á póstlistann og fáðu póst um afslætti og nýjar vörur. Þegar þú skráir þig á póstlistann þá færðu afsláttarkóða sem veitir þér 10% afslátt af fyrstu pöntun.
- Choosing a selection results in a full page refresh.
